Veldu þér tölu:

Fjötur

Henrik
Þingeyingurinn
Þóra Elísabet
(Arngunnur
Bessi
Edda og Egill
Jón Emil
Kristján
Söllenbergers)

Kátir piltar
Mottumaðurinn
Walrus

Gamalt og gott

janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008
janúar 2009
febrúar 2009
mars 2009
apríl 2009
maí 2009
júní 2009
júlí 2009
ágúst 2009
september 2009
október 2009
nóvember 2009
desember 2009
janúar 2010
febrúar 2010
mars 2010
apríl 2010
maí 2010
júní 2010
júlí 2010
ágúst 2010
september 2010
október 2010
nóvember 2010
desember 2010
janúar 2011
febrúar 2011
mars 2011
apríl 2011
maí 2011
júní 2011
júlí 2011
ágúst 2011
september 2011
desember 2011



30 júlí 2006

Greitt í píku

Hvor þessara er með greitt í píku? Svarið fyrst og spyrjið foreldra ykkar svo.


Þetta var skrifað kl. 19:25 |

=================

21 júlí 2006

Þingeyingaferð

Í þann mund sem Sigurður var að kveðja son sinn, Kára, sagði hann: ,,Og þið farið að reglum skátanna?" Kári skildi ekki alveg hvað faðir sinn var að fara, það sást á svipnum sem kom á hann. ,,Er hægt að summa þær upp?" Sigurður hugsaði sig um nokkra stund og sagði: ,,Skemmta sér fallega."

Kári ætlar sér að fylgja þessum reglum.


Þetta var skrifað kl. 12:16 |

=================

17 júlí 2006

l

Ég var í burtu um helgina, dvaldi í húsi einu á Snæfellsnesi, eða Nesinu eins og heimamenn kalla það. Helgin var tileinkuð eins árs afmæli Kalla Blómkvist, eða Kalla eins og heimamenn kalla hann.

Svo kom ég í bæinn, það var ljúft með eindæmum. Svo þurfti ég í dag að lesa Blaðið af dagblaðapappír eins og sauðsvartur almúginn. Þar sá ég að ensk lið væru óð og uppvæg að ná í stjörnur liðanna sem voru dæmd niður um deild á Ítalíu.

Meðal þessara stjarna eru Mauro Camonaresi og David Trezeguet.

Camonaresi er ástæða þess að ég hélt ekki heilshugar með Ítölum í úrslitaleiknum. Gekk mun betur að halda með þeim eftir að hann fór út af.

Fyrir vítaspyrnukeppnina var ég beðinn um að nefna einhvern sem ég héldi að skoraði ekki í keppninni. Ég nefndi Trezeguet af því að ég vildi endilega sjá hann klúðra. Það gerðist.

Sem sagt, ég er ekki aðdáandi þessara manna. Ég er hins vegar aðdáandi Liverpool. Því var ég ekki glaður þegar mitt ástkæra Blað sagði að mitt ástkæra Liverpool væri á höttunum eftir þessum lúðum.


Þetta var skrifað kl. 16:20 |

=================

13 júlí 2006

Blaðið

Ég er í vinnunni þannig að ég get ekki bloggað lengi. Hah, talandi um að ég sé í vinnunni þá get á upplýst ykkur um það að ég er prófarkalesari Blaðsins. Prófarkalas meðal annars Blaðið í gær. En á forsíðu mátti finna eftirfarandi:

Foreldrum mun stenda til boða
að fá greitt fyrur að heima
með börnunum í stað þess að
greiðslurnar fari til dagforeldra.

Þetta myndi teljast brottrekstrarsök ef ég væri framkvæmdastjóri þessa fyrirtækis. Því vil ég biðja ykkur um að breiða þetta ekki út.

Annað, ég var í dag að lesa yfir grein um James Blunt. Fyrirsögnin var eitthvað á þessa leið:

Blunt vill búa með öpum

Á svona stundum vildi ég að ég hefði meiri völd því að ekkert vildi ég meira en að breyta fyrirsögninni og hafa hana meira í ætti við:

Líkur sækir líkan heim


Þetta var skrifað kl. 19:52 |

=================



Blaðið

Var rétt í þessu að breyta mínu fyrsta ásættanlegu í viðunandi. Veitti mér gleði heimsins. Það eru ekki mörg orð sem eru ljótari en ásættanlegt en eitt þeirra er óásættanlegt. Úff, þar fór um mig hrollur.


Þetta var skrifað kl. 13:59 |

=================

12 júlí 2006

Allt í lagi

Uppáhaldsorðasambandið mitt er

allt í lagi

allt
í
lagi

Þetta orðasamband hefur allt. Reyndar hefur það líka í og lagi en það hefur, umfram allt, allt.

Von. Ég heyrði það og það birti yfir öllu. Ég er stundum svartsýnn og með þunga lund. Allt í lagi. Það er allt í lagi. Það verður allt í lagi.

Og þá verður allt í lagi.

Því segi ég við þig: Þetta er allt í lagi.


Þetta var skrifað kl. 03:47 |

=================

11 júlí 2006

Grár dagur

Dagurinn í dag var þess eðlis að fólk vildi ekki einu sinni fara í bíltúr. Bezt væri bara að vera heima. Gráminn úti náði með lymskulegum hætti að smokra sér inn í húsið. Allt var svart. Mig langar í lest.

Ef ég hefði tíma færi ég í lest. Róandi hávaðinn í lestinni myndi smokra sér inn í mig og róa mig niður, ég læsi góða bók. Mér er sama hvert ég færi, bara að ég kæmist aftur heim. Rigningin byldi á glugganum. Mér liði vel.

Ég ætti kannski bara að fara í göngutúr. Út í Gróttu. Ég andaði að mér fersku loftinu og það róaði mig niður. Ég væri blautur í gegn. Gott. Hjartað slægi hægt en örugglega.

En ég fer ekki neitt...


Þetta var skrifað kl. 16:09 |

=================

03 júlí 2006

Does this darkness have a name?

Is it your name?


Þetta var skrifað kl. 15:37 |

=================

02 júlí 2006

Hroki gegn hleypidómum

Gay Pride-gangan fór fram í Lundúnum í dag en í dag er einmitt frí í HM í knattspyrnu. Ætti þessi dagsetning að kveða að einhverju leyti niður þá fordóma að hommar hafi alls ekkert gaman af fótbolta. Hmmm, þegar ég skrifaði þessa setningu hafði ég lesbíurnar ekki í huga. En með þær í huga gætu fordómarar hugsað sem svo: Lesbíurnar hafa líklega kúgað aumingja hommana til að hafa gönguna á frídegi HM. En ég, Kári, hugsa að sjálfsögðu ekki svona.

Yfirskrfit göngunnar er "Pride against Prejudice". Mbl.is hefur, skiljanlega, ákveðið að þýða þetta sem ,,Stolt gegn fordómum". En ég má bara til með að nefna það hvað önnur þýðing, sem er mjög rökrétt fyrir sitt leyti, er sniðug og alger andstæða við það sem samkynhneigðir vilja láta bendla sig við: Hroki gegn hleypidómum.


Þetta var skrifað kl. 18:35 |

=================

01 júlí 2006

HM

Þetta er fyrsta stórmótið þar sem ég er yfirlýstur stuðningsmaður Englendinga. Það hefur verið skemmtilegt og ég fékk að upplifa það sem allir stuðningsmenn þeirra hafa einhvern tíma þurft að upplifa, tap í vítaspyrnukeppni. Það þarf eitthvað mikið að gerast til að Englendingar vinni vítaspyrnukeppni. En ætli tíminn lækni ekki öll sár. Annars sá ég mjög hressan mann með íslenzka og portúgalska fánann hangandi út af svölunum hjá sér. Ég brosti til hans.

Alveg síðan keppnin byrjaði hef ég beðið þess með óþreyju að Frakkar dyttu út. Mér var það lífsins ómögulegt að halda með þeim, þar til nú. Ég veitti Frökkum stuðning minn í leiknum við Brasilíu enda væri það æði leiðinlegt ef Brassarnir næðu titlinum enn einu sinni. Viti menn! Frakkar unnu þá 1-0. Ég brosi breitt yfir því að Brasilíumenn eru dottnir út úr keppninni og furða mig einnig á því hvernig þeir gátu Henry sigla svona auðan sjó í sókninni sem hann skoraði í. Ég horfði reyndar á þetta ruglað og Henry-arnir voru þrír, en enginn Brasilíumaður var nálægt, í mesta lagi einn að gæta Henry-anna þriggja. Það er ekki nóg í rugluðum fótbolta.

Kári, frjáls, óháður og ókeypis.


Þetta var skrifað kl. 23:13 |

=================